Kvistabær ræktar og selur útiræktuð stikilsber.
Berin eru oft notuð í saft, vín, hlaup, sultur, te o.fl.rauð stikilsber eru bragðgóð og hægt að borða ein og sér en græn berin eru frekar súr og yfirleitt ekki borðuð eins og þau koma fyrir. Stiklisber er sérlega hentug í sultur og kryddsultur (chutney), í bökur, búðinga, vín- og saftgerð, út á morgunmat, í boost drykki og próteindrykki ýmist fersk eða frosin og fl.
Hægt er að frysta berin og þykja þau jafnvel betri þannig. Mjög gott er að setja fryst stikilsber í hina ýmsu boost-drykki og grænmetisþeytinga.
Stikilsberin okkar eru fáanleg fersk í öskjum eða lausfryst.
Stikilsberjarunnar þurfa góðar aðstæður til að gefa af sér góð ber. Þeim líður best á sólríkum stað þó hægt séað rækta í skugga, uppskeran verður bara minni. góðu skjóli og hlýju sumarveðri til að gefa vel af sér. Býflugur sjá um frjógvun blóma en runninn er um 1,5 m á hæð og þarf að viðhalda og snyrta árlega
Tínsla berjanna er tímafrek og eru berjarunnarnir eru þéttir og þyrnum stráðir svo gæta þarf að þegar tínt er. Hvert ber viktar um 3 – 6 gr. og í tínslu eru berin toguð varlega af greinum. Uppskerutími stikilsberja er í ágúst og september.