Kvistabær ræktar og selur útiræktuð stikilsber.
Sólber eru rík af vítamínum, sérstaklega C-vítamíni en þau innihalda einnig steinefni og andoxunarefni og talin hafa mikil heilsufarslegarn ávinning. Berin eru notuð í matargerð og í heilsuskyni, notuð í saft, vín, hlaup, sultur, út á morgunmat, í boost drykki og próteindrykki ýmist fersk eða frosin, í te og margt fl. Eins hefur laufið hefur verið nýtt til lækninga
Mjög gott er að setja fryst sólber í hina ýmsu boost-drykki og grænmetisþeytinga.
Sólberin okkar eru fáanleg fersk í öskjum eða lausfryst.
Sólberjarunnar þurfa góðar aðstæður til að gefa af sér góð ber. Þeim líður best í góðu skjóli og hlýju sumarveðri til að gefa vel af sér. Býflugur sjá um frjógvun blóma en runninn er um 1-2 m á hæð og þarf að viðhalda og snyrta árlega
Tínsla berjanna er auðveld en tímafrek og eru berin týnd í kippum. Hvert ber viktar um 0,6 – 1,4 gr. Uppskerutími sólberja er í ágúst og september.